Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Nú vantar klukkuna 5 mínútur í fimm, en klukkan fimm hefjast þingflokksfundir. Forseti hefur því ákveðið að fresta nú fundi. Talað hafði verið um að e.t.v. yrði kvöldfundur, en með tilliti til þess hvernig veðrið er held ég að það sé ekki mikið vit í því og fundinum er því frestað.