Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa að á fundi í hádeginu í dag með formönnum þingflokka var farið fram á það að þingflokksfundir stæðu aðeins klukkutíma og þingfundir gætu hafist kl. 6. Því mótmælti þingflokkur Sjálfstfl. og taldi sig þurfa lengri tíma. Þess vegna var ekki talið ráðlegt, einkum og sér í lagi með tilliti til mjög erfiðrar færðar, að hafa hér kvöldfund, en þar sem tveir þingflokkanna hafa nú farið fram á það skal forseti verða við því. Fundinum er því frestað til kl. 9. --- [Fundarhlé.]