Vinnubrögð í Seðlabanka Íslands
Þriðjudaginn 07. febrúar 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Þegar hv. 1. þm. Reykv. skýrði mér frá því að hann hefði áform um að bera fram þá fsp. sem hér er borin undir þingheim sagði ég honum að ég hefði að sjálfsögðu ekkert á móti því að svara slíkum spurningum, sæktist ekki eftir því, en jafnframt að ég mundi hlíta úrskurði forseta. Ég segi því nei.