Vísun mála til nefnda
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Í lögum um þingsköp, 15. gr., segir svo:
    ,,Fjvn. fjallar um frv. til fjárlaga og fjáraukalaga og þingsályktunartillögur sem til hennar kann að vera vísað og fara fram á útgjöld úr ríkissjóði.``
    Hér var óskað eftir að till. sem hér var nú afgreidd yrði vísað til fjvn. og forseta er ógerningur að sjá að ekki hafi verið farið að samkvæmt lögum um þingsköp.