Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Mig langar til að bera fram eina spurningu af fyllstu hógværð: Er það rétt hjá mér sem ég hef heyrt og lesið einhvers staðar að hæstv. ráðherrar hafi þær skyldur að mæta á þingi þegar þingfundir eru? Mig langar til að fá einfalt svar við þessu. Það er nóg að það sé í eins atkvæðis orði, annaðhvort jái eða neii.