Varaflugvöllur
Mánudaginn 20. febrúar 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hæstv. forsrh. er á leiðinni. Forseti þingsins vill bjóða hv. 2. þm. Norðurl. e. að fresta máli sínu þar til forsrh. kemur en mun gefa öðrum hv. þm. orðið. ( PP: Ég fell frá orðinu úr því að þessi var niðurstaðan.) Þá tekur til máls sá þingmaður sem þar er næstur í röð. ( HBl: Ég er næstur á mælendaskrá.) Óskar hv. 2. þm. Norðurl. e. að halda ræðu sína? ( HBl: Já.) Hann tekur þá til máls.