Fyrirspurn um varaflugvöll
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseta er ljúft og skylt að taka fyrir 9. mál á dagskrá. Það gerist hins vegar stundum að forseti reynir að taka mál ákveðinna ráðherra í röð þannig að þeir geti komist til annarra starfa þegar þeirra fyrirspurnum er lokið. En hvort tveggja skal gert að beiðni hv. 2. þm. Norðurl. e. Mál hans verður tekið fyrir og hann mun halda áfram ræðu sinni kl. 12 sem hann gat um áðan.