Fyrirspurn um varaflugvöll
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Þegar ég bar fram fyrirspurn mína til þess forseta sem sat í stólnum fyrr í dag, hvenær mín fyrirspurn kæmi á dagskrá, var hæstv. samgrh. að svara fyrirspurn þannig að ef farið hefði verið eftir þessu með kippurnar hefði verið eðlilegt að halda áfram með fyrirspurnir hæstv. samgrh. Það má vera að hæstv. forseta misminni, en varla hæstv. menntmrh. svo glöggur sem hann er.