Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):
    Hæstv. forseti. Ég tek undir að það lítur einkennilega út, alla vega á blaði, að hér sé varpað fram fyrirspurnum á þremur þingskjölum til þriggja mismunandi ráðherra um nákvæmlega sama málefnið ef svo má að orði komast. Ég tek undir með hæstv. dómsmrh. að það er rétt að ræða þetta í einni heild undir þá fsp. hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur og geymi mér þá að ræða málið frekar.