Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Hæstv. forseti. Á síðasta þingi var rætt um breytingar á áfengislögum, nánar tiltekið innflutning og sölu á áfengu öli. Þá var hæstv. núv. menntmrh. skeleggur andmælandi þessara breytinga og beitti sér gegn málinu. Hann vék að því í umræðum að hann hefði sem þáv. heilbrmrh. lagt fyrir ríkisstjórn í desember 1982 svohljóðandi tillögu, ef ég má vitna með leyfi hæstv. forseta:
,,Skipuð verði á vegum ríkisstjórnarinnar nefnd sem vinni að undirbúningi tillagna um opinbera stefnu í áfengismálum, sbr. efni þáltill. sem samþykkt var á Alþingi 7. maí 1981. Með starfi þessarar nefndar á að stefna að því að ná fram þeim grunni er byggja mætti á heildstæða og markvissa stefnu og löggjöf um stjórnun áfengismála, þ.e. um tilbúning og dreifingu áfengis, áfengisvarnir, meðferð áfengissjúkra, rekstur meðferðarstofnana og um upplýsinga-, rannsókna- og fræðslustarfsemi.``
Við umfjöllun áfengislaganna í fyrra flutti hv. þm. Svavar Gestsson brtt. ásamt hv. þm. Jóni Helgasyni og fyrirspyrjanda þess efnis að reglugerð um áfengismál yrði breytt þannig að bætt yrði við hana þessu ákvæði, með leyfi forseta:
,,Skulu ákvæði reglugerðarinnar stuðla að því að draga úr ofneyslu áfengis og styðja við forvarnarstarf, einkum fyrir ungt fólk.``
Nú er hv. þm. orðinn menntmrh. og undir hann heyra því fræðslumálin. Hann er nú einnig orðinn samstarfsmaður hæstv. heilbrmrh. sem hann gagnrýndi mjög í umræðum á sl. ári og hefur nú aðstöðu til að hafa áhrif á þessi mál og á hæstv. heilbrmrh. og láta gott af sér leiða.
Nú verður hafin sala áfengs öls þann 1. mars nk. Það er því rík ástæða til þess að spyrja hæstv. ráðherra um leið og ég vil vitna alveg sérstaklega í fyrirspurn hv. þm. Inga Björns Albertssonar sem kom fram áðan um ákvæði til bráðabirgða í áfengislögum: Hefur menntmrh. beitt sér fyrir sérstöku fræðsluátaki um áfengismál vegna sölu áfengs öls á Íslandi 1. mars nk.?