Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. heilbrmrh. fyrir hans góðu og fróðlegu ræðu. Ég tel að það sé alveg ljóst að þessi mál verða betur í stakk búin en fyrr miðað við það sem hér hefur verið sagt. En það liggur líka ljóst fyrir að það þarf meira að gera og það þarf aukna peninga. Ég vonast til þess að hæstv. ráðherrar beiti sér fyrir því að veitt verði auknu fjármagni til þessa málaflokks og þykist þá vita að það verði hægt að standa betur að þessum málum í framtíðinni. En ég þakka hæstv. ráðherra og hv. flm. fyrir þeirra mál.