Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Á þskj. 539 liggur fyrir álit meiri hl. fjh.- og viðskn. sem hefur athugað þetta frv. og rætt það við Jóhann Má Maríusson og Örn Marinósson frá Landsvirkjun.
    Meiri hl. nefndarinnar mælir með því að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 448, með breytingu sem flutt er á sérstöku þskj.
    Að þessu nál. standa auk mín: Árni Gunnarsson, Ragnar Arnalds, Kristín Halldórsdóttir og Guðmundur G. Þórarinsson.
    Á þskj. 540 liggur fyrir brtt. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. Hún er flutt í framhaldi af mjög réttmætri athugasemd hæstv. viðskrh. en við 1. umr. málsins hér í deildinni kom hann auga á þann ágalla á frv. þessu að það vantaði gildistökuákvæði. En brtt. okkar bætir úr því.