Afgreiðsla þingmála
Mánudaginn 06. mars 1989

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Forseti vill benda hv. 16. þm. Reykv. á að þetta umrædda mál, þ.e. seinasta dagskrármálið, aðstoð við leigjendur, er einnig með hæstu tölu þingmála og venjan er sú að fara eftir þeirri röð þegar mál eru sett á dagskrá nema einhverjar sérstakar ástæður gefi tilefni til, þannig að það mætti þá kannski vænta þess að á næsta fundi verði þetta mál ofarlega á dagskránni miðað við það að tekist hefur að ljúka málum þessa fundar að undanskildu þessu eina máli.