Stjórn umhverfismála
Þriðjudaginn 07. mars 1989

     Flm. (Matthías Á. Mathiesen):
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins segja það sem svar við þessari ræðu hv. þm. að það er ævinlega svo að Sjálfstfl. er reiðubúinn að læra af alþjóðlegri reynslu. Ég er miklu meira í vafa um að aðrir hér séu tilbúnir til þess og þess vegna miklu meiri ástæða fyrir hv. þm. að beina því til annarra. En við munum sjálfsagt eiga ánægjulegar viðræður um þessi mál í þeirri nefnd sem ég hef lagt til að frv. verði vísað til.