Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Það frv. sem hér er lagt fram um breyt. á lögum nr. 72/1969, um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, með síðari breytingum, og flutt er af Matthíasi Bjarnasyni o.fl. er mjög í anda þeirrar stefnu sem við í Borgaraflokknum höfum markað. Ég vil því lýsa ánægju minni yfir frv. því að meginstefnan er nánast sú sama og við höfum markað okkur í þessum málum.
Það er mjög jákvætt að hver aðili njóti þess sem hann aflar og það fyrirkomulag að Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins verði þannig að hver aðili safni upp verðmætum í sinn eigin sjóð er einmitt í rétta átt.
Þá er það ekki síður jákvætt að gert er ráð fyrir því að hægt verði að ávaxta sjóðinn fyrir hvern aðila í þeim banka eða sparisjóði sem viðkomandi óskar eftir sem þýðir jafnframt að aðilar geta ávaxtað fé úr Verðjöfnunarsjóði í heimahéraði og tel ég það til mikilla bóta. Það er ekki nokkur vafi á því að það er mjög brýnt að Verðjöfnunarsjóður verði til áfram. Við höfum margoft orðið fyrir því að það eru sveiflur í sjávarútvegi, verðlagi og útflutningi þannig að slíkur sjóður mundi að sjálfsögðu styrkja fyrirtæki í sjávarútvegi. Ég held að þau ákvæði í frv. séu til mikilla bóta og vil styðja að framgangi þessa máls eins og hægt er.
Þá vil ég sérstaklega lýsa ánægju minni með 4. gr. frv. þar sem segir að greiðslur inn á sérreikninga hjá Verðjöfnunarsjóði og gengis- og verðbóta- og vaxtatekjur af innistæðum á slíkum reikningum skuli undanþegnar tekjuskatti og eignarskatti. Ég held að þetta sé einnig til mikilla bóta og muni stuðla að sparnaði hjá fyrirtækjum og menn hafi vilja til að koma sér upp aukasjóðum sem renna stoðum undir góðan rekstur fyrirtækja. Þetta frv. er miklu betra en það frv. sem flutt var í gær af hv. sjálfstæðismönnum þar sem þeir vildu leggja á sérstakan eignarskatt. Ég tel að þetta sé meira í anda þess að gera hvern einstakling og hvert fyrirtæki sem sjálfstæðast og sem best í rekstri.
Það er einnig ljóst, eins og hv. 1. flm. kom inn á áðan, að ákvæði til bráðabirgða getur auðvitað vafist fyrir mönnum því það er erfitt að skipta upp þeim eignum sem eru fyrir hendi og getur að sjálfsögðu orðið álitamál en frá því verður ekki vikist ef menn vilja koma slíku á. Ég ætla að vona það að við sem erum í sjútvn. getum staðið að því að koma þessu máli áfram og ég lýsi því yfir að ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að stuðla að því að frv. fáist samþykkt.