Afvopnun á höfunum
Fimmtudaginn 09. mars 1989

     Albert Guðmundsson:
    Athugasemd mín skal vera örstutt, virðulegur forseti. Ég vil lýsa fullum stuðningi mínum við þá málsmeðferð sem hæstv. utanrrh. hefur haft á þessu máli og ég vil lýsa ótta mínum við það ef þær skoðanir sem hér hafa komið fram, þó að maður fari ekki út í skoðanir sem hafa komið fram áður frá hv. 2. þm. Austurl., verða leiðandi í utanríkismálum Íslands. Og ég frábið mér þær og allt hans tal um þessi mál.