Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Það er hárrétt hjá hv. 9. þm. Reykn. að úr hófi hefur dregist að svara umræddri fsp. Forseti vill taka fram að það hefur hvað eftir annað verið gengið eftir svari við þessari fsp. en ekki tekist að fá það enn þá og nú, eins og fram hefur komið, er hæstv. fjmrh. erlendis þannig að marklaust var að taka málið á dagskrá í dag. En ég skal gera allt sem unnt er til þess að þessari fsp. verði svarað á næsta reglulegum fyrirspurnafundi í Sþ.