Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Geir Gunnarsson,

5. þm. Reykn.``

    Ólafur Ragnar Grímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili sem varamaður og er hann boðinn velkominn til starfa.
    Enn fremur hefur mér borist svofellt bréf, dags. 14. mars 1989:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Jón Bragi Bjarnason prófessor, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Jón Baldvin Hannibalsson,

5. þm. Reykv.``

    Og því fylgir svofellt bréf til forseta Nd.:
    ,,Þar sem ég undirrituð er nú í fæðingarorlofi er mér ekki unnt að taka sæti á Alþingi í fjarveru 15. þm. Reykv., Jóns Baldvins Hannibalssonar utanrrh.
Virðingarfyllst.

Lára V. Júlíusdóttir.``

    Jón Bragi Bjarnason prófessor hefur áður tekið sæti hér á Alþingi á þessu kjörtímabili og er hann boðinn velkominn til starfa.