Ríkisreikningur 1987
Miðvikudaginn 15. mars 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Ég tel að hv. 5. þm. Vestf. hafi nokkuð til síns máls og vil fara þess á leit við hæstv. forseta að hann verði við þeirri ósk sem fram er komin um það að geyma þessa atkvæðagreiðslu. Það er eðlilegur framgangsmáti að fjvn. gefist tækifæri til þess að ljúka sínu starfi áður en við afgreiðum ríkisreikninginn frá deildinni.