Tilkynning um utandagskrárumræðu
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að hér mun um kl. 3 fara fram umræða utan dagskrár. Umræðan fer fram að beiðni hv. 11. þm. Reykv. og fjallar um viðskipti Olís, Alþýðubanka og annarra fjármálastofnana. Umræðan fer fram skv. fyrri mgr. 32. gr. laga um þingsköp og skal ekki standa lengur en í hálftíma.