Sjónvarpssendingar um gervihnetti
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil upplýsa hv. 5. þm. Vesturl. að ég gerði boð fyrir hæstv. menntmrh. og var tjáð að hann kæmi á hverri stundu. Mér er illa við að loka umræðu hefði hann viljað taka til máls, en nú veit ég ekki hvað tefur. --- Og kemur þar nú hæstv. ráðherra. Hann skal upplýstur um að hv. 5. þm. Vesturl. hefur talað fyrir þáltill. sinni um sjónvarpssendingar um gervihnetti og ég vildi spyrja hæstv. ráðherra hvort hann kysi að taka þátt í þeirri umræðu.