Olís og Alþýðubankinn
Fimmtudaginn 16. mars 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Eins og tilkynnt var úr forsetastóli þegar þessi fundur hófst fer nú fram umræða utan dagskrár að beiðni hv. 11. þm. Reykv. Umræðan fer fram samkvæmt fyrri mgr. 32. gr. þingskapalaga og skal ekki standa lengur en í hálftíma. Umræðuefnið er Olís og Alþýðubankinn.