Afgreiðsla frumvarps til lánsfjárlaga
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Fyrir nokkrum mínútum frétti ég að það væru aðeins níu stjórnarliðar staddir í Nd. Það mun vera ein meginástæðan fyrir því að ekki er hægt að halda áfram umræðum og atkvæðagreiðslum um það mál sem þarf að koma hingað. Ég legg til að það verði dokað aðeins við en það er ástæðulaust að bíða hér lengi kvölds ef ekki fjölgar í Nd. Þá er hyggilegra að hafa fund annaðhvort í fyrramálið eða síðar á morgun.