Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Af þessu tilefni skal tekið fram varðandi hið síðara atriðið að forseti hefur haft þann hátt á að hafa samband við fulltrúa úr öllum flokkum og kynna þeim hvernig dagskrá mundi líta út. Ég hef ekki beinlínis orðað það svo að það væri samningur eða samkomulag en að um það hefði verið talað. Dagskrá er að sjálfsögðu ævinlega á ábyrgð forseta.
    Varðandi hið fyrra atriði sem hv. þm. ítrekaði mun forseti taka það til vinsamlegrar athugunar og íhugunar.