Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Herra forseti. Síðan 2. umr. lauk hefur verið unnið að brtt. sem kallaðar voru aftur til 3. umr. hér við 2. umr. málsins. Ég óska því eftir að það verði gert andartaks hlé á þessari umræðu áður en henni lýkur, þannig að tími gefist til að dreifa brtt. sem samkomulag hefur orðið um að flytja í kjölfar á þeirri afgreiðslu brtt. sem kallaðar voru til baka við 2. umr.