Hæstv. forseti. Hér er nú lagt fram frv. til laga um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum. Hér er verið að leggja fram enn eitt nýtt frv. þar sem verið er að taka sjálfsforræði einstaklinganna inn á ríkisjötuna og verið að deila og drottna. Þetta frv. gengur algjörlega gegn þeirri stefnu að gera einstaklingana sem ábyrgasta og kerfið þannig að þeir þurfi ekki að vera að þiggja af ríkinu sífelldar bætur á öllum sviðum.
Þessar svokölluðu vaxtabætur eru náttúrlega sýndarleikur og eru eftir öðru sem þessi ríkisstjórn leggur fram því að það er alveg einhlítt að vaxtabætur sem borga á eftir þessu eru náttúrlega engar vaxtabætur, hreint engar. Þetta er sýndarleikur og hlægileg skopsýning sem hæstv. fjmrh. stendur hér fyrir. Það er verið að reyna að slá ryki í augun á almenningi í landinu sem þegar er orðinn þreyttur á þeim skattaálögum sem lagðar hafa verið á þjóðina og hér er verið að ganga berhögg við sjálfsforræði einstaklingsins. Það er verið að draga fjárhagslegt sjálfstæði úr höndum manns með gífurlegum skattaálögum á öðrum sviðum og moka svo út einhverjum smáslettum sem í þessu tilfelli kallast vaxtabætur. Ég á von á því að næst verði borgaðar út menningarbætur ef menn geta ekki búið nógu nálægt leikhúsum eða öðru slíku. Þetta er alveg furðuleg samsetning.
Á sama tíma í fyrra voru alþýðuflokksmenn og þeir menn, sem stóðu þá í forsvari hér í þinginu, að tala um einfaldara, réttlátara og skilvirkara kerfi, en núna er hellt inn frumvörpum sem öll eru í þá veru að það er verið að gera skattakerfið og lífið fyrir einstaklingana miklu flóknara og erfiðara en þyrfti að vera. Það er verið að gera kerfið ómanneskjulegra og það er raunverulega óframkvæmanlegt fyrir venjulegt fólk að vita hvernig það á að sækja um þessar eða hinar bæturnar og hvernig það á að fara að. Enda kemur m.a. fram í grg. með frv. að í ljós kom að árið 1988 voru greiddar út 400 millj. í húsnæðisbætur til 9500 aðila. Af þeim töldu 30% ekki fram nein vaxtagjöld. Það sýnir best að fólkið veit ekki hvernig það á að haga sér í þessu flókna kerfi sem er verið að gera æ verra og með þeim hætti að menn þurfa að vera með heilan bunka af eyðublöðum og þarf sífellt að vera að sækja um hinar bæturnar og aðrar bæturnar í staðinn fyrir að reyna að létta af mönnum sköttum, hækka tekjurnar með þeim hætti og létta þeim t.d. róðurinn í sambandi við tekjuskattinn og aðra skatta sem eru lagðir á, en ekki vera að gera það með þessum hætti sem er bara sýndarmennska. Hæstv. fjmrh. er að reyna að slá sig til riddara og segja fólkinu: Sjáið þið hvað ég er góður. Ég er góði maðurinn, friðarengillinn frá Moskvu, maðurinn sem er að gefa ykkur vaxtabætur. Hann er nýbúinn að leggja á þjóðina skatta sem eru margfalt meiri en þetta. Þetta er nú öll viskan í þessu.
Það hefði verið nær að hækka tekjuskattsstigið, það hefði verið nær að hækka launin til fólksins með þeim hætti að það þyrfti ekki að vera að leggja fram svona
vitleysisfrumvörp. Ég verð að segja það að þessi stefna, sem þessi flækjufótur er að leggja hér fram, er algjörlega í grundvallaratriðum röng stefna. Það er verið að ganga í þá veru að það er verið að gera þjóðfélagið ómanneskjulegra og gera fólki ókleift að vita hver réttur þess er og hvernig það á yfirleitt að standa að málum.
Þessar vaxtabætur eru alfarið einn hlutinn af því að koma fólki í enn einn vanda, það á að sækja um alla vega bætur. Svo eru hér töflur með alla vega tölulegum upplýsingum um þessa vitleysu --- sem er hægt að lesa upp og hæstv. fjmrh. er náttúrlega afskaplega fróður í því --- og fólkið skilur ekki neitt í þessu, enda að sjálfsögðu ekki von til þess. Það er verið að leika sér með fjármuni einstaklinganna, fjármuni sem er búið að taka af þeim og rífa af þeim í skattana, sem síðan á að fara að gefa þeim aftur og segja: Ég er góði maðurinn, nú ætla ég að gefa ykkur hérna smávaxtabætur fyrir alla skattana sem ég er búinn að taka af ykkur.
Það er greinilegt að það er verið að ganga einmitt í þá veru sem vinstri menn eru svo afskaplega hrifnir af, og þeir hafa nú séð árangurinn af því þar sem þeir hafa fengið að ráða, þar sem fólkið hefur það alverst. Það er verið að ganga til þeirrar veru og þetta er alröng stefna.