Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég verð að áminna hv. 1. þm. Suðurl. um það að hann hefur lækkað í tign og á ekki lengur sæti í fjh.- og viðskn. þessarar deildar og hefur lent í öðru. Þannig er mál með vexti að við komum til með að ræða á fundi í fjh.- og viðskn. annað mál sem líka er mjög brýnt. Ég veit ekki hvort okkur gefst tími til að eyða tíma í þetta mál. Ég reikna hins vegar með því að taka það fyrir á fundi í fyrramálið og ég bið hv. deild að hafa biðlund þangað til.