Verðbréfaviðskipti
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Sem betur fer vannst fjh.- og viðskn. tími til að fara yfir þetta mál og gott samkomulag varð um það að meiri hl. leggur til að þær breytingar sem Ed. gerði á þessu frv. verði teknar gildar, enda liggur það fyrir að efnisbreytingin kemur inn í annað frv. sem einnig hlýtur afgreiðslu. Meiri hl. leggur til við deildina að fallast á að samþykkja frv. eins og Ed. gekk frá því.