Lánsfjárlög 1989
Miðvikudaginn 22. mars 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Ég tel að með þeim lánsfjárlögum sem hér liggja fyrir séu brotnar þær meginreglur sem eigi að viðhafa í fjármálum ríkisins. Ég hef marglýst því yfir að ég tel að það eigi að draga eins og framast er kostur úr erlendum lántökum opinberra aðila. Hér er þvert á móti verið að auka verulega lántökur opinberra aðila. Ég get því ekki stutt lánsfjárlögin og segi nei.