Söluskattur
Þriðjudaginn 04. apríl 1989

     Forseti (Jón Helgason):
    Það er þannig að hér í deildinni voru áðan afgreidd til 3. umr. fjögur mál. Það er föst venja að 3. umræðu mál séu yfirleitt fyrst á dagskrá á næsta fundi. Þau eru ágreiningslaus svo að ég geri ráð fyrir að það sé ekki annað en atkvæðagreiðsla um þau á morgun. Ég mun halda þeirri venju en síðan er þetta næsta mál á dagskrá.