Heræfingar varnarliðsins
Fimmtudaginn 06. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Nú stendur þannig á að samið hefur verið við þingflokk Sjálfstfl. um að hér hefjist að nýju umræða utan dagskrár sem frestað var í fyrrinótt og fjallaði um heræfingar á Keflavíkurflugvelli. Mótmæli hv. þm. því ekki verða nú tekin út af dagskrá 8., 10., 13., 15., 16., 17. og 18. mál, en á þessum fundi hefst nú áðurnefnd umræða.