Staða og rekstur fiskvinnslufyrirtækja
Mánudaginn 10. apríl 1989

     Pálmi Jónsson:
    Virðulegi forseti. Ég hafði lokið minni ræðu við þá umræðu sem fram fór hér að ég ætla í síðustu viku og ég minnist þess ekki að hafa beðið um orðið aftur, en ég hlýt að vekja athygli hæstv. forseta á því að hæstv. forsrh., sem flutti þá skýrslu sem hér er tekin á dagskrá, hefur fjarvistarleyfi í dag og það er tæpast hægt að ræða skýrsluna áfram án þess að hæstv. forsrh. sé viðstaddur.