Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Svavar Gestsson:
    Virðulegur forseti. Þar sem nú er unnið að því á vegum ríkisstjórnarinnar að sett verði heildarlöggjöf um forskólastigið vona ég að það valdi ekki verulegu tjóni að samþykkja frv. eins og það liggur hér fyrir. Ég tel að sú breyting sem hv. félmn. gerði frá upphaflegum frumvarpsdrögum sé til bóta. Ég segi já með þessari yfirlýsingu, herra forseti.