Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég vil taka undir það sem hv. 3. þm. Vesturl. rifjaði upp áðan að mjög góð reynsla er af því að sveitarfélög beri ábyrgð á tónlistarfræðslu. Það er nauðsynlegt fyrir tónlistarskólana að þeim sé stjórnað í heimahögum og því segi ég já.