Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram í máli m.a. hv. 3. þm. Vesturl. og lýsi áhyggjum mínum út af því hvernig er háttað með tónmenntakennslu í grunnskólum. Í trausti þess að það verði tekið á því máli og reynt að nýta þá skipan mála sem hér er lögð til varðandi tónlistarskóla sveitarfélaga segi ég já.