Hreppstjórar
Þriðjudaginn 11. apríl 1989

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um hreppstjóra sem er m.a. vegna breytinga á sveitarstjórnarlögum að því er varðar sýslunefndir. Það má segja að þetta frv. sé ekki að öllu leyti fylgifrv. þess sem var áðan mælt fyrir. Þetta frv. skýrir sig sjálft og ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um það og vænti þess að það verði tekið til athugunar ásamt öðrum frv. í hv. allshn., en vil að lokinni þessari umræðu leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.