Hagþjónusta landbúnaðarins
Miðvikudaginn 12. apríl 1989

     Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Nú er klukkan eina mínútu yfir fjögur og komið fram yfir þann tíma sem er ákveðinn til funda þingflokka, en einn hv. þm. er á mælendaskrá í þessu máli. En þar sem þannig stendur á að forsetar og fulltrúar þingflokka eru á fundi nú rétt í augnablikinu til samráðs um framhald þinghaldsins í dag tel ég rétt að gefa næsta ræðumanni orðið um þetta mál á meðan við dokum við.