Sorpbrennslan á Skarfaskeri við Hnífsdal
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):
    Virðulegur forseti. Aðeins örstutt. Ég fagna síðustu orðum hæstv. ráðherra og vona að myndarlega verði tekið á þessum málum nú strax þannig að fólk þurfi ekki að búa við þetta í sumar. Þrátt fyrir þá varanlegu lausn sem á að finna, sem ég fagna svo sannarlega, verði ekki beðið allt of lengi með það að losa fólk undan þeim ófögnuði sem þarna er.