Yfirlýsing um stofnun nýs þingflokks
Fimmtudaginn 13. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Eins og tilkynnt var fyrr í morgun hefst þessi fundur á því að hv. 5. þm. Vesturl. hefur óskað eftir því að gefa á hinu háa Alþingi yfirlýsingu. Umræða þessi fer fram skv. fyrri mgr. 32. gr. laga um þingsköp og hefur málshefjandi nú mál sitt.