Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Athugasemd mín verður örstutt. Hæstv. fjmrh. talaði um eldhús hér áðan. Vissulega veit Kvennalistinn og konur vita það að það þarf að vaska upp í eldhúsinu og konur kaupa ekki einnota umbúðir sem er hent strax að notkun lokinni. Þær vaska upp nefnilega og taka til til lengri tíma.
Ég verð að lýsa óánægju minni með þau svör sem hæstv. ráðherra gaf hér áðan við fyrirspurn minni, sem var hér ítrekuð af hv. 6. þm. Reykv. Hv. 6. þm. Reykn. hafði líka innt hann eftir svari við þessari sömu spurningu sem varðar námsbækurnar. Hann telur að þetta sé mjög flókið og stórt og viðamikið mál. Hann hefur samt nú þegar svarað fyrirspurn minni frá því 15. des. sl., um það hversu háa upphæð er hér um að ræða þannig að það liggur fyrir í fjmrn. hversu mikil sala fer fram á námsbókum hér.
Ég ætla aðeins að lokum, hæstv. forseti, að vitna til viðtals sem ég rakst á í Morgunblaðinu í september sl. við Sigurð Svavarsson sem hefur mikla reynslu af kennslu og er kennslubókaritstjóri Máls og menningar og flokksbróðir hæstv. fjmrh., þar sem hann segir: ,,Ég held að Ísland sé eina landið í heiminum sem innheimtir neysluskatt af námsbókum, sem er hneyksli.`` Og það er kannski spurningin hér: Telur fjmrh. það verjandi að leggja söluskatt á námsbækur? Það getur verið að það séu einhverjar flækjur í því að framkvæma það að afnema hann en það hlýtur að vera hægt að svara fyrirspurn minni um skoðun hæstv. fjmrh. um þetta efni.