Söluskattur
Þriðjudaginn 18. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):
    Ég vil aðeins geta þess vegna orða hv. 6. þm. Reykn. að það er ekki nema von að þingmenn og aðrir ruglist hér í ræðuröðinni, svo margar hafa ræðurnar verið og mörg málin sem hafa farið hratt í gegn, en hv. 14. þm. Reykv. talaði í annað sinn í þessu máli þegar hann talaði hér áðan. En hann tók reyndar til máls í öðrum málum hér áðan svo að það kann að vera að það hafi ruglast.