Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að lengja mál þetta öllu meira en vil lýsa yfir stuðningi mínum við þetta frv. sem ég tel til mikilla bóta. Sannarlega er kominn tími til að ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga verði löguð að nútímanum og gerð með þeim hætti að Alþingi og fjárveitingavaldinu verði gert kleift að fylgjast með störfum framkvæmdarvaldisns og hvernig farið er með fjármuni ríkisins. Ef litið er á nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar sést að á síðasta ári fór framkvæmdarvaldið nærri 6,5 milljörðum kr. fram úr fjárlögum og þá er ekki tekin með verðbólguþróun þar fram yfir. Það er því alveg öruggt að tími er kominn til að höfð sé þumalskrúfa á framkvæmdarvaldinu, séð til þess að fjárlög séu haldin og að eyðsla framkvæmdarvaldsins verði takmörkuð allverulega. Skattar þeir sem hafa verið lagðir á núna í vetur eru náttúrlega afleiðing af því að framkvæmdarvaldið hefur fengið að leika lausum hala og þar eru menn ekki ábyrgir gerða sinna, hafa getað eytt úr ríkishítinni eins og þá lysti án þess að nokkur sækti þá til ábyrgðar. Því vil ég lýsa stuðningi við frv. og ætla að vona að það náist samstaða um það á hinu háa Alþingi að þessu máli verði komið í nýtískufarveg og þetta mál verði samþykkt.