Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Eins og kom fram í atkvæðagreiðslu hér áðan hafa þingstörf verið með óvenjulegum hætti. Störfin hér í Nd. Alþingis eru orðin umhugsunarefni fyrir óbreytta þingmenn stjórnarandstöðunnar þegar þeir eru látnir sitja hér og starfa hér í deild um miðjar nætur og aðeins nokkrir hv. þm. viðstaddir þá umræðu. Óvirðing í garð þingmanna er algjör. Það hefði verið ómaksins vert fyrir hæstv. fjmrh., ef ég nefni hann sem dæmi, að koma úr ,,Undralandi`` sínu í ráðuneytinu og hlusta á raddir þingmanna til tilbreytingar.
Hæstv. forseti. Ég vil spyrja: Er það boðlegt að ætla stjórnarandstöðunni tíma um miðjar nætur til að koma skoðunum sínum á framfæri? Er þetta boðlegt kjósendum okkar sem ætlast til þess að þarfir þeirra séu teknar til umfjöllunar á alvarlegan hátt en ekki að þingmönnum sé ætlað að ræða hver við annan eins og hér var í nótt?
Þótt ágætt sé að fá fram sjónarmið Kvennalistans og Sjálfstfl., eins og í nótt, hefði verið nauðsyn að heyra frá hæstv. ráðherrum um þau mál sem voru til umræðu. Þingræðið er í hættu og vinnubrögð ríkisstjórnarmeirihlutans eru líkari einræði en lýðræði. Ég spyr hæstv. forseta hvort honum þyki þau vinnubrögð sem voru höfð í frammi í nótt boðleg og þá hvort ekki sé ástæða til þess að skipta um tíma fyrir stjórnarandstöðufrv. og þingmannafrv. þannig að ráðherrar geti talað fyrir sínum málum á nóttunni en almennir þingmenn á daginn. Því mætti ætla að áhugi ríkisstjórnarinnar yrði meiri á að mæta hér í þinginu ef tekið yrði tillit til stjórnarandstöðunnar.
Ég vil spyrja hæstv. forseta hvort taka megi mark á ummælum hæstv. forsrh. hér í gærkvöldi, hvort ætla megi að þing verði a.m.k. fram undir miðjan maí og jafnframt vil ég vekja athygli á að hæstv. forsrh. talaði um að ekki væri nein sérstök ósk að fá afgreidd lög um umhverfisráðuneyti nú á þessu þingi og jafnvel að svo væri um fleiri mál ríkisstjórnarinnar.
Ég spyr því: Hvaða mál leggur ríkisstjórnin áherslu á að afgreiða fyrir þinglausnir? Og ég spyr forsrh.: Hvaða mál leggur hann áherslu á að þingið afgreiði fyrir þinglausnir, þannig að hægt sé að taka önnur mál hennar af dagskrá?
Hæstv. forseti. Ég óska eftir svörum við þessu.