Pálmi Jónsson:
    Herra forseti. Vegna þess að það kom ekki fram í máli hæstv. ráðherra langar mig til að spyrjast fyrir um hvort sérstakt tilefni sé til að fá þetta mál afgreitt með hraði í gegnum þingið, hvort tilefni sé til þess vegna þess að þeir aðilar sem nefndir eru í frumvarpinu séu í þann veginn að flytja inn slík skip sem hér eru nefnd eða hvort þetta sé almenn og rúm heimild sem geti hugsanlega orðið notuð einhvern tímann í framtíðinni. Ef einhvern þeirra aðila sem hafa óskað leyfis að flytja inn skip skortir lagaheimild til þess að þau verði skráð þá er rétt að það komi hér fram. Þess vegna eru þessar fyrirspurnir fram bornar.