Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Að þessum orðum töluðum vill forseti upplýsa að sú gangskör sem hv. þm. hefur beðið um að gerð yrði hefur þegar verið gerð. Einungis þrem fyrirspurnum sem beðið hafa óeðlilega langan tíma hefur ekki verið svarað. Fyrirspurnir sem ósvarað er eru óvenjulega fáar og flestar mjög svo nýframlagðar.
    En ég tek undir með hv. 1. þm. Reykn.: Þessi umrædda fsp. hefur beðið allt of lengi og það hefur þegar verið ítrekað að svar bærist.