Matthías Á. Mathiesen:
    Virðulegi forseti. Hæstv. utanrrh. hefur gert grein fyrir vissum atriðum sem að sjálfsögðu geta haft þau áhrif að svar við slíkum fyrirspurnum tefjist og þau komi ekki í tæka tíð. En ég vænti þess að hann sjái til þess að svar við þessari fsp., sem er orðin meira en mánaðar gömul, gæti verið hér á dagskrá á fimmtudaginn í næsta fyrirspurnatíma.