Hreppstjórar
Miðvikudaginn 26. apríl 1989

     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breytingu á lögum um hreppstjóra, nr. 32 frá 26. apríl 1965.
    Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.
    Undir nál. rita Jón Kristjánsson, Guðni Ágústsson, Kristinn Pétursson, Kristín Halldórsdóttir, Geir Gunnarsson og Friðjón Þórðarson.