Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hæstv. ríkisstjórn annast ekki verkstjórn á Alþingi, það gerir forseti Sþ. og hann vinnur samkvæmt eigin starfsáætlun. Annað hef ég ekki um þetta að segja. Enginn hæstv. ráðherra hefur farið fram á að þinglokum verði frestað.