Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Herra forseti. Ég tók eftir því að hv. 1. þm. Norðurl. v., formaður fjh.- og viðskn., gat þess í tengslum við þetta mál að til meðferðar væri í nefndinni frv. frá menntmrh. sem tengdist þessu máli. Nú vil ég spyrja hv. þm. hvort ekki sé alveg ljóst að það sé annað frv. um svipað efni til meðferðar hjá nefndinni líka og hvort nefndin hafi ekki skoðað það eða muni ekki skoða það í tengslum við frv. menntmrh. Þau frv. fjalla um mjög svipað efni, en þó er nokkur munur á þeim, þannig að ég tel alveg nauðsynlegt að nefndin fjalli um bæði þau frv. alveg samhliða.