Sigló hf.
Föstudaginn 05. maí 1989

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegur forseti. Sem svar við þessari fyrirspurn verð ég að taka það fram að ég hef ekki kynnt mér þetta mál sérstaklega. Skiptaráðandi í þessu tilviki hefur hins vegar fulla tiltrú mína og dómsmrn. og ég hef enga trú á því að hann hafi framkvæmt neitt af því sem hv. þm. sagði. Það hefur ekkert komið fram hjá dómsmrn. sem bendir til þess en ég skal verða við þeirri beiðni að kynna mér þetta mál sérstaklega. Ég vil endurtaka það að þessi skiptaráðandi hefur fulla tiltrú ráðuneytisins og ég hef enga trú á því að hann geri neitt af því sem hv. þm. spurði um.